Spurningar & svör

• HVERSU LENGI STENDUR NÁMSKEIÐIÐ YFIR
– Nemendur hafa fullan aðgang að námsefninu í 365 daga frá skráningardegi.

• HVAР KOSTAR NÁMSKEIÐIÐ
– Fyrir 12 mánaðar tímabil kostar fjarnámskeið 16.900 kr. (nema að annað sé tekið fram). Hægt er að skrá sig í fjarnámið hvenær sem er og fá nemendur 12 mánaða ótakmarkaðann aðgang. Nemendur geta tekið þátt í námskeiðinu þegar þeim hentar á þessum 12 mánaðar tíma.

ER HÆGT AÐ GREIÐA MEÐ GREIÐSLUKORTI
– Nei, í augnablikinu er aðeins hægt að greiða með millifærslu.

• ER HÆGT AÐ KAUPA STYTTRI TÍMA EN 1 ÁR
– Nei, það er eingöngu í boði 12 mánaðar áskrift.

• ER HÆGT AÐ KAUPA LENGRI TÍMA EN 1 ÁR
– Já, það er hægt að fá framlengingu á námskeiðið og er þá greitt 7.900 kr. fyrir það.

• HVAÐ GERIST EF ÉG GLEYMI NOTANDANAFNINU MÍNU EÐA LYKILORÐINU
– Þú einfaldlega smellir á línunu “týnt lykilorð” og skráir inn netfangið þitt. Sjálfvirkt kerfi sendir um hæl notendanafn þitt og/eða lykilorðið í tölvupósti og þú kemst þá strax inn á vefsíðuna.

• ER HÆGT AÐ SKOÐA NÁMSEFNIÐ Í ÖLLUM TÖLVUM OG SNJALLTÆKJUM.
– Já það er hægt.

• FYRIR HVERJA ER NÁMSKEIÐIÐ
– Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja:
* læra á sína myndavél
* ná góðum  tökum á stafrænu tækninni
* vilja taka enn betri myndir

• ER NÁMSKEIÐSEFNIÐ Á ÍSLENSKU
– Já allt námskeiðsefnið er á íslensku

• ER NÁMSKEIÐIÐ BÆÐI FYRIR LITLAR OG STÓRAR VÉLAR
– Námskeiðið er fyrir allar tegundir myndavéla, litlar og stórar.

• ER SÉR NÁMSEFNI FYRIR ÁKVEÐNAR TEGUNDIR MYNDAVÉLA
– Já, það er mjög góðar leiðbeiningar á Íslensku fyrir ýmsar tegundir myndavéla.

• ÞURFA NEMENDUR AÐ SKILA INN VERKEFNUM
– Nei, nemendur fá ekki nein verkefni.

• TAKA NEMENDUR PRÓF Á MEÐAN NÁMSKEIÐIÐ STENDUR YFIR
– Nemendur geta tekið stöðupróf (krossapróf) í mörgum námskeiðshlutum og séð niðurstöðuna sína strax.

• HVAÐ ÞARF VIÐKOMANDI AÐ HAFA TIL AÐ TAKA ÞÁTT Í FJARNÁMSKEIÐINU
– Aðgang að Netinu og vera skráður notandi.

• HVERNIG GENGUR SKRÁNINGIN Á NÁMSKEIÐIÐ FYRIR SIG
– Þú smellir á hnappinn KAUPA AÐGANG og fyllir í nokkra reiti og staðfestir.  Þú greiðir áskriftina og þá færðu aðgang að fjarnámskeiðinu.

• GETUR NEMANDINN KOMIST INN Á SÍÐUNA SÍNA HVAR SEM ER
– Já, á ef hann hefur aðgang að Netinu.

• ER HÆGT ER AÐ SENDA INN FYRIRSPURNIR UM HVAÐ EINA ER TENGIST LJÓSMYNDUN
– Já það er hægt í gegnum tölvupóst.

• HVER REKUR ÞESSA ÞJÓNUSTU
– Íslenska ljósmyndaþjónustan ehf.
Kt. 580108-1560