Kynning á námskeiðsefninu

Yfir 200 kaflar um stafræna ljósmyndun er að finna á námskeiðinu. – Allt á íslensku og á auðskiljanlegu máli.

Markmið Fjarnámskeiðsins er að kenna grunnatriðin í ljósmyndatöku –  skref fyrir skref –  bæði fyrir áhugaljósmyndara og eins þeim sem hyggja á frekara nám í ljósmyndun.  Kennd eru undirstöðuatriði í ljósmyndatækninni, m.a. hvernig best er að stilla myndavélina fyrir mismunandi myndatökur, hvernig hægt er að ná sem mest úr myndavélinni. Auk þess er sýndar alls kyns myndatökur og sýnd mörg dæmi. Hér er um að ræða mjög ítarlegt kennsluefni í ljósmyndun.

Gefin eru góð ráð fyrir almennum myndatökum bæði innandyra og utandyra, sýnd notkun á ljósum í stúdíói, Raw vinnsla í tölvu ásamt grunnvinnslu í Photoshop og margt fleira. Kennt á aðalatriði í Lightroom forritinu. Grunnstillingar á mörgum myndavélum, ásamt öðrum stillingum á vélunum eru útskýrðar.  Fjallað um hvernig er best að stilla ljósmyndavélina við að ná sem bestum myndum við hinar ýmsu aðstæður. Einnig er benta á hvernig hægt er að stilla snjallsímana til að ná enn betri myndum á auðveldan hátt. Vandamál og lausnir, þar sem tekin eru fyrir helstu vandamál varðandi myndatökur og bent á góðar lausnir. Fjallað um videotöku og videovinnslu. Fjallað um videoklippiforrit og sýnt hvernig á að vinna við að klippa vídeo, hljóðsetja ásamt mörgu öðru.   Mikinn fróðleik um ljósmyndun er að finna á þessu fjarnámskeiði.

Nettengdur við leiðbeinanda.

Námsefnið er skrifað af Pálma Guðmundssyni  sem hefur starfað við ljósmyndakennslu á vegum ljosmyndari.is frá árinu 2002 og tekið myndir frá árinu 1967. Myndir eftir Pálma hafa birst opinberlega víða um heim, í bæklingum, plakötum, dagblöðum,  tímaritum, póstkortum, jólakortum, dagtölum, í auglýsingum  o.sv. frv.  Ríkissjónvarpinð birti myndir frá Pálma í dagskrárlok í yfir 20 ár. Með því að vera þátttakandi á fjarnámskeiðinu ertu í sambandi við leiðbeinanda og getur sent inn fyrirspurnir um hvað eina er snýr að ljósmyndun.

 Hvar sem er – hvenær sem er.

Þú hefur fullan aðgang að námskeiðinu í 365 daga og getur skoðað námsefnið og annað efni síðunnar hvar sem ert í heiminum (ef þú ert nettengdur) og hvenær sem er sólarhrings á þeim hraða sem þér hentar, í allt að 365 daga frá skráningardegi. Engin takmörk eru á því hversu oft þú mátt fara inn á fjarnámskeiðs síðuna. Hægt er að framlengja áskriftina um aðra 12 mánuði og kostar framlengingin 7.900 kr.

Hvernig skráir þú þig ?

Þú smellir á hnappinn KAUPA AÐGANG og fyllir í nokkra reiti og staðfestir.  Þú greiðir áskriftina með greiðslukorti og þá strax færðu aðgang að fjarnámskeiðinu. Einnig er hægt að greiða með millifærslu enþá þarf að senda okkur tölvupóst til að fá nánari upplýsingar.

Innskráning.

Í hvert sinn sem þú ferð inn á síðuna byrjar þú á því að skrá inn notendanafn þitt og lykilorð. Þar með ertu kominn á fjarnámskeiðið og getur skoðað námsefnið og lært. Þú getur séð alla kaflana í 365 daga. Ef þú týnir notendanafni eða lykilorði, þá einfaldlega smellir þú á “týnt lykilorð” og þá færðu sent í tölvupósti notendanafnið þitt ásamt lykilorði.

Kennsluefnið.

Kennsluefnið er flokkað niður í kafla (yfirflokka og undirflokka) til að auðvelda þér að finna það sem þú vilt lesa og læra.

Kaflaskipt.

Í hverjum kafla eru ítarlega útskýrð ýmis atriði í rituðum texta með ljósmyndum og skýringarmyndum.

Krossapróf.

Þú getur tekið krossapróf í ýmsum flokkum til að kanna hversu mikið þú hefur lært.  Hægt er að gera nokkrar tilraunir og birtast þá niðurstöður úr prófinu í hvert sinn. Þegar þú  hefur náð að svara öllum spurningun rétt  úr einhverju krossaprófinu, getur  þú ekki tekið prófið aftur.  Þú getur séð hversu margar tilraunir þú hefur gert í hverju krossaprófi. Alls eru komnar nú yfir 100 krossaprófsspurningar.

Snjallsíminn minn.

Hægt er að velja sérkafla um snjallsíma, bæði Iphone og Samsung. Fjallað um hvernig á að ná enn betri myndum á símana, hvernig á vinna myndirnar í símanum, skipuleggja myndasafnið, merkja myndir með staðsetningu og hverjir eru inn á myndunum. Sýnt hvernig hægt að leita á marga vegu ofl. ofl.  Ágætt er fyrir nemandann að vera með símann við höndina þegar hann les yfir kaflana.

Myndavélin mín.

Hægt er að velja sérkafla um margar myndavélar. Hver tegund/gerð er höfð í sérkafla. Algengustu vélartegundir eru teknar fyrir, en bætt verður við tegundum þegar þurfa þykir.   Ágætt er fyrir nemandann að vera með myndavélina við höndina þegar hann les yfir kaflann um sína vél.

 

Kennsluefni fyrir eftirtaldar myndavélar eru nú þegar komnar inn á fjarnámskeiðið:

CANON EOS: 
7d
40d
70d
80d
250d
350d
400d
450d
550d
600d
650d
700d
760d
850d
1000d
1100d
EOS M
EOS R
EOS 2000 D
EOS 4000 D
EOS M50
IXUS 80 is
Powershot G7X
Powershot SX430

FUJIFILM:
X-H1

NIKON:
D 60
D 3300
Coolpix P 1000

OLYMPUS:
OM-D E-M10 Mark III
E-510

PENTAX:
K 200 D

PANASONIC:
LUMIX G90

SONY:
DSLR-A 200
Alpha a5000
Cyber shot RX100 VI
a
6000
A7 III
ZV-1

Nýju námsefni er bætt við í hverjum mánuði.

FJARNÁMSKEIÐ.IS FÓR FORMLEGA Í LOFTIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. JÚNÍ 2009 kl. 01:05
SÍÐASTA UPPFÆRSLA  Á SÍÐUNNI VAR GERÐ Í JANÚAR 2019